Verklýsingar eftir aðstæðum
Eftirfarandi verklýsingar eru unnar eftir upplýsingum frá framleiðendum efnisins. Tekið skal fram að engin munur er á meðferð venjulegs og ryðfrís stáls fyrir utan kröfur um ryðvörn.
Hvað og Hvar | Hvernig | |
Húðun á nýsmíðuðu járni til notkunar innanhúss | Járnið skal vera án málningarrestar, “shop primer”eða brennsluhúðar. Járnið er fituhreinsað, slípað með sandpappír, fosfaterað , þurrkað og hitað áður en það er húðað. Lakkað með polyester duftlakki sem bakast í 15-20 mínútur við 180 – 200°C . |
|
Húðun á nýsmíðuðu svörtu járni til notkunar utanhúss | Járnið skal vera án málningarrestar, “shop primer” eða brennsluhúðar. Járnið er fituhreinsað, slípað með sandpappír, fosfaterað og þurrkað og hitað áður en það er húðað. Grunnað með Zero Zink duft grunni og bakað í 15 – 20 mín. eða lengur, fer eftir því hversu járnið er þykkt. Lakkað með polyester duftlakki sem bakast í 15-20 mínútur. við 180 – 200°C | |
Húðun á nýsmíðuðu galvaniseruðu járni til notkunar úti | Best er að sandblása galvanhúðina létt annars sýruþvegið ( fituhreinsað) og pússað með sandpappír. Járnið er hitað, síðan húðað með sérstökum grunni úr duftlakki fyrir galvanhúð. Bakað í 15-20 mín. við 180-200°C. Litað síðan með polyester duftlakki sem bakast í 15-20 mínútur. . |
|
Húðun á járni sem er með gamalli málningu af óþekktri gerð til notkunar inni | Ef málningarrestar, shop primer eða brennsluhúð er á járninu þá er það sandblásið með ryðfríum stál sandi þannig að eftir sitji fín sandblástursáferð á járninu. Ath. Minnstu leyfar af málningu skapa bólur í duftlakkinu. Húðað með polyester duftlakki sem bakast í 15-20 mínútur við 180-200°C. | |
Húðun á málmi með gömlu duftlakki til notkunar inni | Farið er yfir gamla duftlakkið með sandpappír, stundum pússa niður í málminn þannig að ekki finnist djúpar rispur ef strokið er yfir með fingurgómum. Málmurinn er ryk- og fituhreinsaður, fosfateraður og þurrkað áður en húðað. Lakkað með polyester duftlakki sem bakast í 15-20 mínútur við 180 – 200°C. | |
Húðun á smíðajárni með eldhúð til notkunar inni | Rauð eldhúð hreinsast burt með sandpappír eða sandblásin með ryðfríum stálsandi. Járnið er rykhreinsað, fituhreinsað, fosfaterað og þurrkað áður en það er húðað. Lakkað með polyester duftlakki sem á að bakast í 15-20 mínútur við 180 – 200°C | |
Húðun á nýju áli til notkunar inni | Álið er slípað með sandpappír, ryk- og silikonhreinsað, fosfaterað og þurrkað áður en það er húðað. Lakkað skal með polyester duftlakki bakast í 15-20 mínútur. | |
Húðun á nýju áli til notkunar úti | Álið slípað með sandpappír, fituhreinsað, reykblásið, fosfaterað og þurrkað áður en það er húðað. Fyrir mjög tærandi umhverfi (Bláa lónið) skal grunna með ál grunni fyrst síðan litað með polyester duftlakki sem á að bakast í 15-20 mínútur við 180 – 200°C | |
Undirvinna: viðauki | Ef málning “shop primer” eða brennsluhúð er á járninu þá skal það sandblásið þannig að eftir sitji fín sandblástursáferð á járninu. Athugið að minnstu leyfar málningar skapa bólur í duftlakkinu þ.a.l. verður lakk vinnan ónýt. | |
Gljúft stályfirborð: viðauki | Við grófa galvanhúð, gljúft járnyfirborð (pottjárn) eða mjög grófan sandblástur skal fyrst grunna með þar til gerðum grunni (Zinc free out-gassing) áður en húðað er til að loka yfirborðinu og leyfa útblástur innilokaðs lofts á bökunartímanum (ath. passar ekki með “metal” og “special effekt” litum, í þeim tilfellum verður að notast við annan grunn). |