Gæðin skipta máli
|
- reglubundið eftirlit
Gæði pólýhúðar eru einstök bæði hvað varðar viðloðun, áferð slitþol og líftíma. Helstu atriði sem hafa áhrif á gæði pólýhúðar er þvottur, fosfatering, þurrkur, bökun og þykkt húðar. Til að tryggja að þessi atriði séu í góðu lagi þá mælum við pH gildið í þvottavélinni einu sinni á dag og bætum við efnum eftir þörfum og skrásetjum í tölvu.
|
- tölvustýring
Eftir þurrkun er athugað hvort nokkurstaðar stígi upp gufa sem er merki um bleytu. Bökunartíminn er ákveðinn eftir þykkt málmssins samkvæmt reynslutölum og stilltur á tölvuklukku sem tengd er verkbókhaldi.
|
- rétt hitastig
Til að tryggja rétt hitastig er hiti mældur með sérstakri hitabyssu sem mælir yfirborðshita út frá geislun.
|
- rétt þykkt
Þykkt húðarinnar er svo mæld með sérstökum mæli en ef þykktin er ekki næg er sett önnur umferð og hún bökuð að nýju